27.4.2010 | 16:26
Ásta í sjálfsmorðshugleiðingum
Ég var að hlusta á fréttir í morgun á meðan morgunhlaupi mínu stóð. Í fréttum kl. 6 var sagt frá einhverri ægilega fínni rannsókn þar sem tekin var fyrir súkkulaðineysla og geðheilsa. Í þessari frómu rannsókn kom fram að ef þú borðar 120 gr af súkkulaði á mánuði sértu tiltölulega heil heilsu andlega. Ef þú borðar ca 210 gr af súkkulaði á mánuði þá ertu greinilega í frekar slæmu andlegu ástandi og ef þú borðar ca 320 gr af súkkulaði á mánuði (sem svarar til þriggja platna af síríus súkkulaði) þá ertu greinilega djúpt sokkin í þunglyndi.
Ég get því ekki dregið aðra ályktun af þessum niðurstöður en þá að ég sé í bullandi sjálfsmorðshugleiðingum. Ég er nánast fullviss þess að ég borði meira en 320 gr af súkkulaði á mánuði og fari létt með það. Ég er reyndar líka viss um að ef ég gerði það ekki væri ég örugglega mun vanheilli andlega en ella af því ég er á því að súkkulaði sé himnasending
Og hér er ég að borða, ægilega lukkulega, að vísu ekki með súkkulaði og væri örugglega enn hamingjusamari með það uppi í mér.
Kv.
Ásta súkkulaði
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 15402
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég borðaði einu sinni 320 grömm af súkkulaði í hverri viku og varð svo þungur eitthvað að vigtin sprakk.
Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 27.4.2010 kl. 16:49
Þurfum við að fara til sálfræðings þá saman? Ekki hætti ég að borða súkkulaði í hófi sem þó mun líklega vera í kringum þessi 320gr á mánuði.
Sigrún (IP-tala skráð) 27.4.2010 kl. 17:52
ahahahhahahhaah ég á sem sagt að panta mér tíma NÚNA hjá einhverjum góðum sálfræðingi eða bara pannta mér eitt stk væntumþykjutreyju??!! Ætli ég fari ekki létt með að sporðrenna amk 400 gr af súkkulaaaaaðððeehh ja á tveggja vikna fresti
*sleikirútumogkyngirsíðastatwixbitanum*
Linda súkkulaðisjúkklingur (IP-tala skráð) 27.4.2010 kl. 20:58
Samkvæmt þessu eru flestar konur í fæðingarorlofi við það að steypa sér fram af hamrinum eða steindauðar.
Sóla (IP-tala skráð) 27.4.2010 kl. 21:32
Var ég búin að segja þér að ég kem með súkkulaðiköku í kvöld? ;) sjáumst
Agga, 29.4.2010 kl. 10:24
Og hún var góóóóóð:)
Ásta (IP-tala skráð) 9.5.2010 kl. 07:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.